Fjáraflanir á Kántrýdögum og Reykjavíkurmaraþoni fyrir fjölskylduna sem enn er föst í Kólumbíu

Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir frá Skagaströnd og Friðrik Kristinsson frá Sauðárkróki hafa setið föst með ættleiddar dætur sínar í kólumbísku borginni Medellin frá því í desember, eins og hefur greint frá áður í Feyki. Ferðin sem átti að taka sex til átta vikur er orðin að átta mánuðum og nú er útlit fyrir fjögurra til fimm mánaða bið til viðbótar.

Bjarnhildur og Friðrik áfrýjuðu máli sínu til næsta dómsstigs og sagði Bjarnhildur í samtali við Rúv að það hefur samþykkt að taka mál þeirra fyrir og er búist við að sú bið geti tekið fjóra til fimm mánuði til viðbótar.

Dvölin í Kólumbíu er orðin mjög fjárhagslega erfið fyrir hjónin sem hafa verið tekjulaus frá því í mars. „Þau hafa selt bílinn, fellihýsið og mótorhjól til þess að fjármagna dvölina úti því þau segja ekki koma til greina að gefast upp heldur ætla þau sér að komast heim með dæturnar,“ segir á Rúv.is.

Margir vilja leggja litlu fjölskyldunni lið með ýmsum hætti, t.d. kemur fram á styrktarsíðu hjónanna að fjáröflunarborð verður til styrkar á Kántrýdögum á Skagaströnd en þeir sem vilja bætast í hópinn, leggja eitthvað til eða aðstoða geta haft samband í s. 868-4925.

Þá verður Reykjavíkurmaraþon þreytt um næstu helgi og ætlar hópur fólks, vinir og fjölskyldumeðlimir, að hlaupa í maraþonið og safna áheitum fyrir fjölskylduna (sjá hlaupastyrkur.is).

Fleiri fréttir