Fjárflutningabíll valt með 200 fjár
Fjárflutningabifreið með 200 fjár fór út af veginum skammt frá bænum Sölvanesi í Lýtingsstaðahreppi á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt Rúv.is var Björgunarsveitin Skagafjarðarsveit kölluð út en útkallið var afturkallað því fljótlega var búið að ná kindunum af bílnum.
Þorsteinn Guðmundsson, formaður flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð, sagðist í samtali við Rúv.is ekki vita til þess að neitt fé hefði drepist en hugsanlega þyrfti að aflífa nokkrar skepnur. Vel hafi gengið að ná kindunum úr bílnum og búið er að smala þeim á túnið viðbæinn Sölvanes.