Fjölþrautarmóti UMSS frestað
Ákveðið hefur verið að fresta fjölþrautarmóti UMSS sem fara átti fram á Sauðárkróksvelli laugardaginn 18. júní vegna óviðráðanlegra orsaka. Stefnt er á að halda það fimmtudagskvöldið 21. júlí en það verður auglýst síðar.
Flokkar og keppnisgreinar verða sem fyrr var auglýst:
- 12 ára og yngri : 60m – langstökk – kúluvarp – 600m.
- 13 ára: 60m grind – langstökk – kúluvarp – 600m.
- 14 ára: 80m grind – hástökk – spjótkast – kúluvarp – 600m.
- 15 ára: 80m grind – hástökk – spjótkast – kúluvarp – 600m.
- 16-17 ára: “Gamla Fimmtarþrautin”: Langstökk – spjótkast – 200m – kringla – 1500m.
- 18 ára+: “Gamla Fimmtarþrautin”: Langstökk – spjótkast – 200m – kringla – 1500m.
Nánari upplýsingar veitir Elmar Eysteinsson á umss@simnet.is.