Fjör á skólalóðinni
Vinaliðaverkefnið hóf formlega göngu sína í Árskóla í október en það gengur út á að hvetja nemendur til meiri þátttöku í hverskyns hreyfingu í frímínútum og skapa um leið betri skólaanda.
Samkvæmt heimasíðu skólans er markmiðið að bjóða nemendum fjölbreyttara úrval afþreyingar í löngu frímínútum þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Undanfarinn mánuð hafa 22 vinaliðar á miðstigi Árskóla staðið fyrir ýmiskonar afþreyingu, allt frá hlaupa- og boltaleikjum til kastleikja og dans.
„Hafa krakkarnir skemmt sér við gamla og góða leiki en einnig lært nýja, s.s. Sprengjuleik, Indiana Jones, Klósettdraug og Las Vegas. Það hefur því verið mikið fjör á skólalóðinni,“ segir á heimasíðu skólans.