Flass 104,5 hefur útsendingar í Skagafirði
Útvarpsstöðin Flass 104,5 hefur hafið útsendingar í Skagafirði á tíðninni FM 93.7. Útsendingarsvæði stöðvarinnar er þá höfuðborgarsvæðið, Akureyri og nú Skagafjörður en ráðgert er að stækka útsendingarsvæðið enn frekar.
„Starfsfólk Flass óskar Skagfirðingum nær og fjær til hamingju með nýja og ferska tóna!“ segir í fréttatilkynningu en þar kemur einnig fram að Flass hefur verið leiðandi í nýrri og ferskri tónlist fyrir ungt fólk á Íslandi í rúm 6 ár. Á stöðinni starfa þekktir útvarpsmenn og má þar nefna Þröst 3000, Yngva Eysteins og Sigga Gunnars.