Flogið aftur eftir hádegi
Flogið verður aftur frá Reykjavík til Sauðárkróks kl. 13 í dag. Feykir greindi frá því í morgun að það þurfti að snúa flugvél Eyjaflugs aftur til Reykjavíkur skömmu fyrir lendingu af öryggisástæðum.
Samkvæmt Ingólfi Arnarssyni flugmanni Eyjaflugs er flugvirki búinn að yfirfara vélina og er flugvélin í toppstandi. Það sem gerðist í morgun var að það kviknaði ekki á einu ljósi sem gaf til kynna að annað vænghjólið hafi ekki farið niður. Af öryggissjónarmiðum var vélinni því snúið tilbaka.
„Þetta var svolítið leiðinlegt en fall er fararheill,“ sagði Ingólfur í samtali við Feyki.
Eyjaflug opnar heimasíðu sína seinna í dag, á slóðinni Eyjaflug.is, og þar verður hægt að kynna sér nánar fyrirtækið og flugið sem er í boði.