Flösku- og dósasöfnun á Króknum í dag
Þeir sem hafa safnað flöskum og dósum i sumar, og vilja gjarnan losna við herlegheitin fyrr en síðar, geta nú tekið gleði sína því seinni partinn í dag munu ungir iðkendur frá knattspyrnudeild Tindastóls ganga hús úr húsi til að safna flöskum og dósum.
Söfnunin fer fram á milli kl. 17:30 og 19:30 og síðan taka leikmenn meistaraflokkanna við og telja það sem upp úr pokunum kemur.
Tökum vel á móti krökkunum!
