Flottur sigur Tindastóls í Fjósinu

Tindastóll sótti Skallagrím heim í Fjósið í Borgarnesi í kvöld í mikilvægum leik í baráttunni fyrir áframhaldandi sæti í efstu deild. Tindastólsmenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og höfðu 15 stiga forskot í leikhléi, 32-47, og heimamönnum í Borgarnesi gekk lítið að brúa bilið og á endanum sigraði Tindastóll með 14 stiga mun, lokatölur 63-77.

Helgi Rafn var stigahæstur í liði Tindastóls í kvöld en Helgi gerði 18 stig og tók 12 fráköst. Nafni hans Margeirsson gerði 15 stig og þá var George Valentine með 11 stig og 11 fráköst. Valentine hafði líka það hlutverk að passa upp á að Páll Axel héldist nokkuð rólegur en Valentine er auðvitað bæði stærri, sneggri og í betra formi en Palli og það var ljóst að Borgnesingar máttu ekki við því að hann ætti ekki stórleik því nú er aðeins einn kani hjá Sköllum. Breiddin er ekki mikil í liði þeirra og því ljóst að það verður á brattan að sækja hjá þeim það sem eftir er af tímabilinu.

Skallagrímur er með 12 stig, líkt og lið Njarðvíkur, en með sigrinum í kvöld komst Tindastóll úr fallsæti í fyrsta sinn í vetur og þá var mikilvægt að liðið sigraði Skallana með 14 stiga mun en heimamenn sigruðu Stólana hér í Síkinu með 13 stigum og standa því Stólarnir betur í innbirðis viðureignum liðanna. KFÍ er með jafn mörg stig og Tindastóll en ÍR og Fjölnir eru nú neðst með 8 stig en bæði lið eiga leik til góða. Sex umferðir eru eftir og því ljóst að ef Stólarnir halda vel á spöðunum er enn möguleiki á að komast í úrslitakeppnina.

Stig Tindastóls: Helgi Rafn 18, Helgi Margeirs 15, George Valentine 11, Drew Gibson 11, Johnson 8, Þröstur Leó 5, Svavar Birgis 5 og Hreinn Birgis 4.

Fleiri fréttir