Flugumýri II valið Hrossaræktarbú Skagafjarðar

Uppskerufögnuður hestamanna í Skagafirði var haldinn sl. laugardagskvöld í Miðgarði þar sem farið var yfir afrek helstu hrossa og knapa á árinu. Kynntir voru stóðhestar HSS fyrir næsta sumar og boðið upp á tónlistaratriði og léttar veitingar. Að sögn Eyþórs Einarssonar mættu yfir fimmtíu manns og áttu saman notalega kvöldstund.

Bjarni Þorkelsson á Þóroddsstöðum var ræðumaður kvöldsins og var gerður góður rómur að hans erindi. Bjarni ræddi um ræktunartakmarkiðið í hrossarækt og fleira tengt hrossapólitík dagsins og einnig las hann minningar frá föður sínum um skagfirska gæðinga og fór með gamanmál.

Viðurkenningar frá Hrossræktarsambandi Skagfirðinga hlutu eftirfarandi aðilar.

Hrossaræktarbú Skagafjarðar  - Ófeigsbikarinn
Flugumýri II

Hæstu hross í hverjum flokki

4 v. stóðhestar
Hraunar frá Vatnsleysu

5 v. stóðhestar
Lord frá Vatnsleysu

6 v. stóðhestar
Hrannar frá Flugumýri II

Hrannar hlaut einnig Sörlabikarinn sem hæst dæmda kynbótahross ársins í Skagafirði, en hann fékk 8,85 í aðaleinkunn sem var hæsta einkunn ársins.

7 v. og eldri stóðhestar
Seiður frá Flugumýri II

4 v. hryssur
Stúlka frá Þúfum

5 v. hryssur
Storð frá Hólum

6 v. hryssur
Ferna frá Hólum

7 v. hryssur
Blika frá Enni

Kynbótaknapi Skagafjarðar – Kraftsbikarinn
Gísli Gíslason

Frá Hestaíþróttaráði Skagafjarðar hlutu eftir farandi aðilar viðurkenningu sem hestaíþróttamenn Skagafjarðar:

Barnaflokkur
Guðmar Freyr Magnússon

Unglingaflokkur
Þórdís Inga Pálsdóttir

Ungmennaflokkur
Sigurður Rúnar Pálsson

Fullorðinsflokkur
Þórarinn Eymundsson

Fleiri fréttir