Flutningaskipið Silver Lake á Sauðárkróki

Flutningaskipið Silver Lake liggur nú við bryggju á Sauðárkróki en það kom með frosna rækju úr Barentshafi. Skipið sem er í eigu Samskipa var smíðað í Noregi árið 2007, nokkuð sérstakt í útliti og vekur hvarvetna athygli. Það er bæði frysti- og gámaskip, 82 metra langt og 16 metra breitt og er sérstaklega styrkt til siglinga í ís. Hámarksganghraðinn er 16 sjómílur á klukkustund og burðargetan 2.500 tonn.

Silver Lake og Málmey í Sauðárkrókshöfn í morgun.

Skipið getur borið 2.000 bretti og 28 gámaeiningar á þilfari. Á skipinu er síðuport af fullkomnustu gerð sem styttir löndunar- og lestunartíma um allt að helming. Skipið var fyrst í eigu Eimskips og hét áður Dalfoss eftir fossi í Vatnsdalsá í A-Húnavatnssýslu.

Fleiri fréttir