Fönnin í Fljótunum
Ljósmyndari Feykis kíkti í Fljótin í sól og blíðu síðasta laugardag til að virða fyrir sér snjóinn sem allt umlykur. Miklavatn í Fljótum er enn nær algjörlega ísilagt en á Brúnastöðum var búið að moka svæðið í kringum fjárhúsin.
Þar stóðu kindurnar hálf vændræðalegar og mændu á fönnina eins og naut á nývirki – hefðu efalaust klórað sér í kollinum ef þær hefðu getað.
Álftir spásseruðu um á ísnum í sínum náttúrulegu vaðstígvélum og annar fiðurfénaður virtist hálf umkomulaus í þessari langdregnu vetrartíð sem virðist engan endi ætla að taka. Það er víst spáð slyddu eða éljum í fyrramálið.