Forn fegurð

Fröken Fabjúlöss er ofsalega veik fyrir fallegum kjólum og finnst gaman að eiga og klæðast kjólum. Ákveðin hefð hefur tildæmis myndast í höfuðstöðvum Frk. Fab að kaupa helst alltaf kjól fyrir jólin og klæðast honum með bros í hjarta yfir hátíðarnar.

Fröken Fabjúlöss var því ekki búin að vera lengi á feisbúkk þegar hún var farin að laða að sér allskonar síður sem selja fallega kjóla og tekur oft og iðulega rúnt í gegnum þær. Uppáhalds búðin þessa dagana heitir Xtabay Vintage Clothing Boutique - Ótrúlega falleg búð sem er staðsett í Portland, Bandaríkjunum og sérhæfir sig í fallegum kjólum frá gullaldarárum kvenleikans 1920-1960. Kjólarnir sem fást í þessari verslun eru flestir eitthvað sem maður gæti ímyndað sér að Jackie Onasis, Elizabeth Taylor og Marilyn Monroe hefðu klæðst með stolti og Fröken Fab gæti hugsað sér að eiga þá alla (enda ekkert mikið minni gella en ofangreindar valkyrjurnar).

Ef þið deilið ást Frk. Fab á kjólum þá eru eindregin meðmæli með að stökkva inn á Xtabay á facebook eða kíkja á heimasíðuna þeirra: http://xtabayvintage.blogspot.com/

Fleiri fréttir