Föst í Kólumbíu - Markaðsborð á lummudögum

Markaðsborð á lummudögum verður til styrktar hjónunum Bjarnhildi Hrönn Níelsdóttur frá Skagaströnd og Friðriki Kristinssyni frá Sauðárkróki . Þau fóru í desember síðastliðnum til Kólumbíu að sækja tvær litlar stelpur sem þau hugðust ættleiða frá Kólumbíu og bjuggust þá við að vera úti í kringum 6 vikur, þau eru ekki ennþá komin heim 6 mánuðum seinna og er ekki útlit fyrir það að þau komi heim neitt á næstunni.

Þetta er mjög dýrt ferli fyrir hjónin og hefur kostnaðurinn farið langt langt fram úr öllum hugsanlegum fjárhagsáætlunum. Markaðsborðið verður staðsett fyrir utan Snyrtistofuna Tána og Strata á Skagfirðingabraut í dag og er fólk hvatt til að líta við og athuga hvort ekki sé eitthvað þar sem hægt er að fjárfesta í og styrkja um leið gott málefni.

Fleiri fréttir