Föst í Kólumbíu – Viðtal við Friðrik og Bjarnhildi í nýjasta Feyki
Feykir er kominn út og kennir þar ýmissa grasa eins og sagt er. Aðalviðtalið að þessu sinni er við þau hjón Friðrik Kristinsson og Bjarnhildi Hrönn Níelsdóttur sem standa í erfiðum málum úti í Kólumbíu vegna ættleiðingar tveggja systra. Ferð sem átti að taka sex vikur hefur lengst svo um munar og eru mánuðirnir orðnir sex og ekki útséð með það hvenær af heimferð getur orðið.
Þau Friðrik og Bjarnhildur eru bæði af Norðurlandi vestra, Friðrik frá Sauðárkróki sonur Helgu Friðriksdóttur og Kristins Haukssonar nú búsett í Garðabæ og Bjarnhildur er hins vegar frá Skagaströnd dóttir Birnu Bjarnadóttur og Níelsar Grímssonar nú búsett í Reykjavík. Þau Friðrik og Bjarnhildur hafa sjálf komið sér upp heimili í Reykjavík þar sem þau starfa, hann sem smiður en hún sem viðskiptafræðingur hjá Deloitte. Þau voru fyrst spurð hvenær og hvernig ættleiðingarferlið hafi hafist hjá þeim og hvernig það hafi gengið fyrir sig.
„Við ákváðum í brúðkaupsferðinni okkar í júlí 2006 að við ætluðum að ættleiða barn. Í kjölfarið fórum við að skoða málið og leist okkur best á Kólumbíu.Við fórum síðan í fyrsta viðtalið okkar hjá Íslenskri ættleiðingu í desember 2006, þar var okkur sagt að biðin eftir börnum frá Kólumbíu væri tæplega 2 ár“, segir Bjarnhildur en þau lögðu inn umsókn til að fá forsamþykki þann 15. janúar 2007. Forsamþykki þurfa allir að hafa frá íslenskum stjórnvöldum til að mega ættleiða erlendis frá. Það er mikil félags- og sálfræðilegur pakki sem erfitt er að fara í gegnum og einnig er fjárhagurinn tekinn út og á endanum stóðu þau uppi með stóra skýrslu um það hvað þau væru gott fólk og myndu verða góðir foreldrar. „Þegar forsamþykkið var tilbúið sendum við svo umsókn okkar út til Kólumbíu 29. júní 2007. Síðan var bara beðið og beðið og þurftum við að endurnýja forsamþykkið nokkrum sinnum í biðinni. Biðin var mjög erfið og gekk mjög nærri okkur en áður en við byrjuðum í ættleiðingarferlinu vorum við búin að reyna að eignast börn í 4 ár“.
Fyrstu upplýsingar um stelpurnar fengust þann 18. nóvember 2011. Þá hringdi Kristinn hjá ÍÆ í Bjarnhildi og tilkynnti henni að þau ættu tvær litlar stelpur úti í Kólumbíu. „Það var ótrúlega skrítin tilfinning að það væri loksins komið að okkur, en mjög ánægjuleg. Síðan á 35 ára afmælisdegi Friðriks þann 25. nóvember fengum við svo allar upplýsingar um stelpurnar og sáum í fyrsta sinn mynd af litlu fallegu prinsessunum okkar. Við fengum margra blaðsíðna skýrslu um þær og var alveg dásamlegt að lesa um þær og urðum við bara ástfangnari og ástfangnari af þeim með hverri blaðsíðunni sem við lásum. Eftir að við lásum skýrsluna um þær fengum við svo að sjá myndirnar af þeim og var þá engin vafi í okkar huga að þetta voru stelpurnar okkar, segir Bjarnhildur enda var það þeirra fyrsta verk að fara og tilkynna ættingjum og vinum að þau ættu tvær litlar prinsessur í Kólumbíu.
Í Feyki er saga þeirra í Kólumbíu rakin á einlægan hátt, hvernig fyrstu kynni litlu fjölskyldunnar var og loforðið sem þau gáfu litlu stelpunum, að þau muni öll komast til Íslands á endanum.