Fótboltamót Arion banka um helgina

Næstkomandi laugardag verður haldið fótboltamót í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.  Allir geta tekið þátt, bæði iðkendur Tindastóls sem og þeir sem ekki æfa fótbolta. Að sögn Ómars Braga Stefánssonar formanns knattspyrnudeildar Tindastóls þurfa þeir sem vilja vera með að mæta 30 mínútum áður en þeirra keppnisflokkur hefur keppni, skrá sig til leiks og þá verður raðað í lið.  Frítt er á mótið.

Keppni hefst á eftirtöldum tímum:

  • 10:00   7. flokkur drengja og stúlkna
  • 11:00   6. flokkur drengja og stúlkna
  • 12:00   5. flokkur drengja og stúlkna
  • 13:00   4. flokkur stúlkna
  • 14:00   4. flokkur drengja
  • 15:00   3. flokkur stúlkna
  • 16:00   3. flokkur drengja

Ómar ítrekar að þeir sem vilja vera með þurfa að mæta 30 mínútum fyrir skráðan tíma.

-Við hvetjum foreldra til að koma með, aðstoða eftir þörfum og fylgjast með.

Fleiri fréttir