Fótboltastelpur í fjáröflun
Stúlkurnar í 3. flokki kvenna Tindastóls ætla að bregða sér út fyrir landssteinana í sumar og taka þátt í fótboltamóti frænka vorra í Gautaborg. Hafa þær stundað fjáröflun af miklum móð í allan vetur og meðal verka var að setja áburðar- og sáðvöru pantanir Fóðurblöndunnar í umslög sem eru á leið til bænda.
Nýprent sér um að prenta þessa lista fyrir Fóðurblönduna og hér fyrir neðan má sjá hvernig stelpurnar virkuðu sem lið við öðruvísi verkefni en á knattspyrnuvellinum. Að sjálfsögðu mössuðu þær þetta verkefni eins og von var til.
https://www.youtube.com/watch?v=vu9jJE2fkBY