Frábær árangur á Opna KS mótinu
Opna KS mótið fór fram laugardaginn 9. júní í blíðskapar veðri. „Alls tóku tæplega 50 kylfingar þátt í mótinu sem tókst hið besta og var árangurinn frábær hjá mörgum kylfingum,“ segir á heimasíðu Golfklúbbs Sauðárkróks.
Í fyrsta sæti í mótinu urðu þau Árný Árnadóttir og Rafn Ingi Rafnsson. Samkvæmt heimasíðu GSS komu þau inn á ótrúlega góðu skori eða 67 höggum brúttó, 5 höggum undir pari, en með forgjöf var skorið 63 högg. Í öðru sæti voru þau Ingvi Þór Óskarsson og Arnar Geir Hjartarson sem léku á 68 höggum eða 65 með forgjöf.
Í þriðja sæti urðu þau Dagbjört Rós Hermundardóttir og Ásmundur Baldvinsson á 67 höggum með forgjöf. Þau urðu jöfn Ingibjörgu Guðjónsdóttur og Birni Sigurðssyni, Þóri Þórissyni og Auði Dúadóttur úr GA og Brynjari Guðmundssyni og Þorbergi Ólafssyni. Þau síðarnefndu voru með heldur lakara skor á seinni 9 holunum og hlutu þau Dagbjört og Ásmundur því þriðja sætið, samkvæmt heimasíðu GSS.
Mótið var spilað með fyrirkomulaginu Texas Scramble en þá spila að tveir og tveir saman í liði og velja betra högg í hvert sinn sem þeir slá.