Frábær stemning á V.S.O.T. tónleikum í gærkvöldi

Það voru algjörir dúndurtónleikar í Bifröst í gærkvöldi þar sem fjöldi frábærra tónlistarmanna steig á svið og brilleraði. Flestir voru listamennirnir skagfirskir og gaman var að sjá fjölbreytnina í tónlistinni og á sviðinu ægði saman flestum aldurshópum. Og það voru bara allir í stuði - enda skemmtunin fullkomin í fullu húsi!

Fyrstir á svið voru Mega búgí og réðust strákarnir ekki á garðinn þar sem hann er lægstur; Jimi Hendrix og Stevie Wonder meðal þeirra sem voru yfirbreiddir. Næstir voru rokkararnir í MOY frá Mosfelli og bjuggu til magnaðan seið og síðan rak hver snillingurinn annan. Ofursveitin V.S.O.T. átti lokahöggið sem var slegið í þann mund sem rafmagnið var tekið af Skagafirði í nótt en þá höfðu áhorfendur skemmt sér hið besta í rétt tæpa fjóra tíma.

Kannski er óþarfi að hafa fleiri orð um herlegheitin og láta myndirnar tala. Þó er rétt að nefna Áskel Heiðar til sögunnar en hann hafði það verkefni að kynna listamennina og vera á léttu nótunum milli atriða.

Fleiri fréttir