Fræðslukvöld Hólanema á Sauðárkróki

Fimmtudagskvöldið 14. febrúar ætla reiðkennaraefni Hólaskóla, þær Bergrún Ingólfsdóttir, Katharina Teschler og Pernille Møller að vera með fræðslukvöld. Þema kvöldsins verður íslenskar stangir og hvernig unnt er að nota þær við þjálfun.

Kvöldið hefst á fyrirlestri  í Tjarnarbæ og að honum loknum verður haldin sýnikennsla í Svaðastaðahöllinni.

Fræðslukvöldið hefst kl. 20:00 í Tjarnarbæ,  aðgangseyrir er 500 kr. (ekki er tekið við kortum). „Hlökkum til að sjá sem flesta!“ segir loks í auglýsingu.

Fleiri fréttir