Framsókn í Skagafirði vill ekki orkupakka 3

Í ályktun sem stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar birtir á Facbooksíðu sinni í dag er áréttað að orkuauðlindin sé ein af mikilvægustu forsendum velmegunar í landinu og telur rétt að skuli leita skuli eftir undanþágu frá innleiðingu þriðja orkupakkans. „Mikilvægi þess að allar ákvarðanir í orkumálum verði í höndum Íslendinga er því ótvírætt.“

„Skal í því sambandi minnt á að stjórnarskrá Íslands leyfir ekki framsal ríkisvalds til erlendra stofnana. Aðstæður Íslands í orkumálum eru gjörólíkar þeim sem liggja til grundvallar orkulöggjöf ESB og því er óskynsamlegt að innleiða það regluverk hér. Ísland hefur í dag enga tengingu við orkumarkað ESB og telur stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar slíka tengingu ekki þjóna hagsmunum landsmanna. Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar telur því rétt að Alþingi og ríkisstjórn skuli leita eftir undanþágu frá innleiðingu þriðja orkupakkans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir