Framsóknarmenn funda á Króknum um helgina

Þingflokkur framsóknarmanna og landsstjórn flokksins munu funda á Sauðárkróki um næstu helgi, bæði laugardag og sunnudag. Gunnar Bragi Sveinsson sem sækist eftir fyrsta sæti á lista framsóknarmanna í kjördæminu í komandi kosningum segir að eftir fund á laugardag verði nokkur fyrirtæki heimsótt í bænum og sveitinni.

-Á sunnudag verður svo fundað með sveitarstjórnarmönnum og fulltrúum KS áður en fólk hverfur úr firðinum fagra, segir Gunnar Bragi.

Fleiri fréttir