Friðrik heiðraður fyrir vel unnin störf

Friðrik Steinsson, formaður Frjálsíþróttaráðs UMSS, var heiðraður á þingi Frjálsíþróttasambands Íslands sem haldið var á Selfossi dagana 16.-17. mars. Friðrik var fært silfurmerki FRÍ fyrir vel unnin störf í þágu frjálsíþróttanna, samkvæmt heimasíðu Tindastóls.

Á þinginu var einnig kjörinn nýr formaður FRÍ, Jónas Egilsson og Ásbjörn Karlsson var endurkjörinn formaður laganefndar FRÍ. Jónas hefur verið framkvæmdastjóri sambandsins frá 2010 og gegndi áður formennsku á árunum 1997-2006.

Í sumar verður ULM 2012 haldið á Selfossi, og sumarið 2013 verður sjálft Landsmót UMFÍ haldið þar. „Mótshaldarar í HSK senda Skagfirðingum bestu kveðjur og vonast til að sjá sem flesta á báðum mótunum,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

Fleiri fréttir