Fróðlegur fundur um jarðskjálfta og viðbrögð vegna þeirra

Í gær var haldinn á Sauðárkróki fræðslu- og kynningarfundur um jarðskjálfta og viðbrögð við þeirri vá sem þeim getur fylgt sem Almannavarnanefnd Skagafjarðar stóð fyrir. Fundurinn var ágætur og með mjög fróðlegum erindum að sögn Vernharðs Guðnasonar slökkviliðsstjóra og formanns Almannavaranefndar Skagafjarðar. Hann segist gjarnan hafa viljað sjá fleiri mæta á fundinn en það voru um 6o manns sem sóttu hann.

Fjölmargir sérfræðingar fluttu erindi m.a. Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra (AVD). Hann fjallaði um jarðskjálfta á norðurlandi, jarðfræði því tengdu og fjallaði á skýran hátt um misgengin á Íslandi og hvað það er sem veldur skjálftum á þeim.

Einar Kjartansson jarðeðlisfræðingur frá Veðurstofunni fjallaði um yfirstandandi jarðskjálftahrinu úti fyrir norðurlandi. Vernharð segir að í máli hans hafi komið fram að líkur væri á að sú hrina sem verið hefur í gangi sé dvínandi. Reiknað er með að uppsöfnuð orka í jarðskorpunni fyrir norðurlandi gæti leist út skjálfta allt að 6.8 á Richter.

-Þannig skjálfti gæti orðið eftir viku eða 30 ár það er einfaldlega ekki hægt að spá fyrir um það með meiri nákvæmni þó eru meiri líkur á stærri skjálfta þegar svona hrina er í gangi heldur en ekki, segir Vernharð.

Það kom líka fram í máli hans að skjálftar við Ísland geti ekki orðið stærri en 7 vegna þykktar jarðskorpunnar hér eða öllu heldur vegna þess að jarðskorpan er þynnri við Ísland heldur en víðast annars staðar.

Þorsteinn Sæmundsson frá Náttúrustofu Norðurlands Vestra fjallaði um ofanflóð og hrun úr fjöllum í jarðskjálftum. Kom fram í máli hans að sennilega var það skjálftahrina sem kom af stað skriðunni í Móafellshyrnu, Fljótum, segir Vernharð en í máli hans kom fram að almennt þarf að gæta varúðar nálægt fjöllum verði jarðskjálfti að stærð yfir 5.

Guðrún Jóhannsdóttir frá AVD fjallaði um forvarnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta. Lagði hún áherslu á að fólk skoði sitt nánasta umhverfi og komi í veg fyrir slys á fólki með því að festa húsbúnað t.d. skápa, kommóður, hillur o.s.fv. Þá fór hún yfir hvernig best er að hegða sér á meðan jarðskjálfti gengur yfir. Krjúpa, skýla, halda eru lykilorðin í jarðskjálfta, segir Vernharð og bendir á ítarefni um forvarnir og viðbrögð sem eru að finna á heimasíðu AVD.

Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar fjallaði um tryggingavernd af völdum náttúruhamfara og tjónareynslu síðustu ára. Hún lagði áherslu á að almenningur kynnti sér tryggingamál sín og að þeir einir væru tryggðir sem væru með brunatryggingu á fasteign og innbú. Þá lagði hún áherslu á að bótafjárhæð tæki mið af brunabótarmati og því afar mikilvægt að það mat endurspeglaði verðmæti fasteigna hverju sinni. Nánar má sjá upplýsingar inn á heimasíðu Viðlagatrygginga.

Þá fjallaði Vernharð sjálfur um gerð viðbragðsáætlana vegna jarðskjálfta og annarra hættu sem steðjað gæti að Skagfirðingum. Segir hann að ákveðið sé í samvinnu við AVD að unnar verði viðbragðsáætlanir fyrir þrjú héruð á norðurlandi undir einni verkefnastjórn í samvinnu við almannavarnanefndir í Skagafirði, Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Afar mikilvægt er að hafa slíkar áætlanir að styðjast við þegar og ef stór jarðskjálfti dynur yfir.

-Þar er horft til fyrstu lífbjargandi aðgerða og svo einnig aðgerðir til lengri tíma litið því hætta er á að neysluvatn gæti spillst, rafmagnsleysi gæti orðið, heitavatnslaust gæti orðið í einhvern tíma og þá gætu frárennslislagnir gefið sig. Að mörgu er að hyggja og er Almannavarnanefnd Skagafjarðar að vinna að þessum málum sem öðrum er lúta að því að vera sem best undir það búin ef stór áföll ríða yfir, segir Vernharð. Í þeirri skjálftahrinu sem verið hefur í gangi undanfarið segir Vernharð að ekki sé vitað um tjón á mannvirkjum en eitthvað hefur verið um skriðuföll. Vill hann hvetja fólk til að kynna sér það forvarnarefni sem aðgengilegt er inn á heimasíðu AVD.

Fleiri fréttir