Fröken Fabjúlöss stimplar sig inn!
Glöggir lesendur Feykis hafa tekið eftir stöku innslögum frá Frú Frábærri. Hérmeð hefur hún verið send í ótímabundið sumarfrí og mun ég, Fröken Fabjúlöss yfirtaka dálkinn hennar!
Eins og nafnið gefur til kynna er ég náttúrulega fáránlega fabjúlöss og mín sérgrein hérna hjá Feyki verður slúður, útlit, tíska og annar álíka óþarfi sem er svo skemmtilegt að velta sér uppúr. Fröken Fabjúlöss leggur hérmeð hönd á Louis Vuitton töskuna sína og gefur það heilaga loforð að pólitík og annar óhugnaður verður látinn í hendur færari manna hérna innan veggja enda höfum við í glamúrhorni veraldarinnar engann áhuga á því :)
Fröken Fabjúlöss reporting for duty!