Frumkvöðlasessur til sölu
Nokkrir hugmyndaríkir strákar úr frumkvöðlafræði í FNV eru að hefja sölu á sessum sem vernda auma rassa. Um er að ræða flottar og þægilegar sessur, mjög meðfærilegar sem hægt er að nota hvort sem er inni eða úti.
Sessurnar eru merktar Tindastól og stór hluti ágóðans mun renna til körfuknattleiksdeildar félagsins. Fólk er hvatt til að fá sér sessu og styrkja Tindastól auk þess að gera sér setuna þægilegri á áhorfendabekkjunum en hægt verður að nálgast þær á leiknum annað kvöld.