Fullkomin skemmtun sem einhverjir munu missa af
Lummudagar hefjast í kvöld á Sauðárkróki með setningarathöfn í fjörunni við siglingaklúbbinn en þar verður tendraður varðeldur og mun söngur og gleði ráða ríkjum. Stundvíslega klukkan 20:30 hefjast svo tónleikarnir V.S.O.T. í Bifröst sem margir bíða spenntir eftir og ekki síst hljómsveitin sem stígur síðust á svið því boðað hefur verið algert straumleysi í stærstum hluta Skagafjarðar frá miðnætti.
Á tónleikunum koma fram ýmsir gamalreyndir tónlistarmenn af öllu landinu sem þó hafa tengsl við Skagafjörð á einhvern hátt. Þetta er í þriðja sinn sem tónleikar undir þessum merkjum eru haldnir á Króknum en upphafið má rekja til þess er brottfluttur Króksari Þórólfur Stefánsson sem nú býr í Svíþjóð langaði að setja upp ball og spila með félögum sínum í Melsgili. Enduðu þær pælingar með tónleikjahaldi í Bifröst og hafa nú nokkrar hljómsveitir tekið upp gamalt spil og æft fyrir tónleikana meðan aðrar eru starfandi og leika sín lög.
Á tónleikunum koma fram um 30 manns í hinum ýmsu grúppum úr heiminum m.a. hin sænsk-íslenska Villtir Svanir og Tófa (V.S.O.T.), Dætur satans frá Egilsstöðum. Synir Þórólfs, 70 rispur, Contralgen funeral, Mega búgí og Skottubandið, frá Sauðárkróki, Ellert Jóhannsson frá Grindavík, MOY frá Mosfelli ofl.
Þórólfur Stefánsson, Gunnar Ingi Árnason, Rögnvaldur Valbergs, Gestur Guðna, Guðni Friðriks, Guðbrandur Guðbrands, Magnús Helgason, Ægir Ásbjörns, Guðbjörg Bjarna, Árni Gunnars, Páll, Margeir og Jóhann Friðrikssynir, Ellert Jóhanns, Dr. Sigurður, Óðinn Gunnar Óðinsson, Fúsi Ben, Sigurlaug Vordís, Andri Sig, Gísli Þór, Kristján Vignir, Hafsteinn Logi, Snævar Örn, Reynir Snær, Sigvaldi Helgi, Ingvi Garðars, Maggi Garðars, Óskar Garðars, Ingunn Kristjáns og Ása Svanhildur munu hafa ofan af fyrir gestum meðan rafmagn leyfir.