Fundaröð SA um Ísland: Fleiri störf - betri störf

Samtök atvinnulífsins efna til fundaraðar um atvinnumálin á Íslandi næstu daga og vikur þar sem fjallað verður um mikilvægi þess að skapa fleiri og betri störf á Íslandi á næstu árum og bæta lífskjör þjóðarinnar. Á morgun 5. febrúar verður haldinn fundur á Kaffi Króki á Sauðárkróki og hefst hann kl. 17.

Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um tækifærin sem eru til staðar í atvinnulífinu og hvað þurfi að gera til að árangur náist.

Auk þess mun Jón E. Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK, taka til máls.

Markmið fundanna er m.a. að leita eftir hugmyndum sem geta nýst við mótun sameiginlegrar atvinnustefnu með Alþýðusambandi Íslands eins og ákveðið var að ráðast í við endurskoðun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í janúar. Í kjölfarið verður stefnan lögð fyrir stjórnmálaflokkanna og óskað eftir viðbrögðum þeirra. Við viljum líka heyra hvað þér finnst.

Það er von SA að á næstu vikum verði grundvöllur lagður að víðtækri samvinnu stjórnmálamanna og samtaka á vinnumarkaði þar sem markmiðið verði að sækja fram, auka hagvöxt og bæta lífskjör.

Fleiri fréttir