Fundur með Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra

Sjálfstæðisfélag Skagfirðinga stendur fyrir opnum fundi með Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra um stöðu og horfur heilbrigðismála í landinu í ljósi fjárlagafrumvarps fyrir árið 2014. Fundurinn verður haldinn í Ljósheimum á morgun laugardaginn 23. nóvember kl. 10:30.

Á 21. Ársþingi SSNV sem haldið var á Sauðárkróki 17. – 19. október 2013 var samþykkt ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að standa vörð um þá heilbrigðisþjónustu sem nú er veitt á Norðurlandi vestra og byggja upp nauðsynlega og stöðuga grunnþjónustu eftir langvarandi niðurskurð og hagræðingu. Sú mikilvæga nærþjónusta er sögð grundvöllur búsetu og atvinnustarfsemi, ásamt því að vera grunnforsenda þegar kemur að búsetuvali.

„Óásættanlegt er að þjónustan verði skert meira en orðið er enda munu slíkar skerðingar valda auknu óöryggi meðal íbúa og fyrirtækja og veikja þannig búsetuskilyrði. Farið verði að ósk heimamanna um stjórnun heilbrigðisþjónustu í héraði,“ segir í ályktuninni og er í ljósi þessa vert að vekja athygli á fundinum og hvetja fólk til að fjölmenna en allir eru velkomnir og heitt kaffi á könnunni.

.

Fleiri fréttir