Fundur um jarðrækt og viðbrögð við kali
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins stendur fyrir fundi með bændum í Höfðaborg á Hofsósi þriðjudaginn 16. apríl kl. 20:30. Framsögumaður er Ingvar Björnsson jarðræktarráðunautur hjá RML.
Samkvæmt fréttatilkynningu verður lögð sérstök áhersla á leiðbeiningar um viðbrögð við kali í túnum á fundinum. Rætt verður m.a. um mismunandi gerðir jarðvinnslu, áburð og nýtingu áburðar, ásamt vali á grastegundum.