Fyrirlestur um næringu íþróttafólks

Föstudaginn 3. febrúar verður haldinn fyrirlestur um næringu íþróttafólks í Húsi frítímans á vegum Ungmennafélagsins Tindastóls. Agnes Þóra Árnadóttir næringarfræðingur mun þá koma og vera með erindi þar sem farið verður yfir næringarþarfir íþróttafólks og hvernig hægt er að nota hollt mataræði til þess að ná sínum markmiðum.
Á heimasíðu Tindastóls segir að Agnes Þóra hafi haldið fyrirlestra fyrir yngri landslið hjá KSÍ undanfarin ár og einnig hjá félagsliðum. Fyrirlestrarnir eru opnir fyrir alla iðkendur Tindastóls og eru þeir hvattir til að fjölmenna og nýta sér þetta tækifæri til að auka þekkingu sína á þessu sviði. Þá hvetur Tindastóll foreldra yngri iðkenda sérstaklega til að mæta.
Fyrirlestrarnir verða tveir, sá fyrri klukkan 18:30-19:30 fyrir krakka í 5.-8. bekk og sá síðari klukkan 19:45-20:45 fyrir iðkendur í 9. bekk og uppúr.
Fyrirlestrarnir verða í Húsi frítímans og er aðgangur ókeypis.