Fyrsta A-landsliðsmark Rúnars
Rúnar Már Sigurjónsson frá Sauðárkróki og fyrrv. leikmaður Tindastóls lék sinn fyrsta landsleik gegn Andorra á sl. miðvikudag. Samkvæmt Fótbolta.net sigraði Ísland Andorra 2-0 á útivelli og átti Rúnar annað markið en Jóhann Berg Guðmundsson átti hitt, og voru þetta fyrstu mörk þeirra með A-landsliðinu.
Rúnar hóf ferilinn hjá Tindastóli en hann gekk í raðir Vals árið 2010 eftir að hafa verið í nokkur ár hjá HK.
Hér má sjá myndskeið frá leik Íslands og Andorra.
http://youtu.be/9m63bVdHAI8