Fyrsta breiðskífa Contalgensins komin út
Contalgen Funeral hefur nú gefið út sína fyrstu breiðskífu og nefnist hún Pretty Red Dress. Platan er hún komin til sölu í Skagfirðingabúð en hana má einnig nálgast í 12 tónum og Smekkleysu syðra og gogoyoko.com á netinu. Einnig má senda póst í contalgenid@gmail.com og sigfusben@gmail.com.
Pretty Red Dress inniheldur 12 frumsamin lög og var tekin upp fyrri hluta árs hjá Fúsa Ben í stúdíóinu hans Stúdíó Benmen. Diskurinn var gefinn út með styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra.
Mikið er um að vera hjá skagfirsku hljómsveitinni um þessar mundir en samkvæmt Gísla Þór Ólafssyni bassaleikara er bandið nýbúið að spila á Bræðslunni og framundan er Edrúhátíð á Laugalandi í Holtum, Kántrýdagar á Skagaströnd og Gæran á Sauðárkróki.
Hér má hlusta á lagið Not Dead Yet af plötunni Pretty Red dress og var nýlega sett í spilun:
http://www.youtube.com/watch?v=cPJKSHTOPJA