Fyrsta embættisverk vígslubiskups við Hóladómkirkju

Hólabiskup sr. Solveig Lára Guðmundssóttir vígði Sunnu Dóru Möller guðfræðing til prests í Akureyrarkirkju í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í gær. Þetta var fyrsta prestvígsla sr. Solveigar Láru sem nývígður vígslubiskup og jafnframt hennar fyrsta embættisverk við Hóladómkirkju.

Sungið og klappað í Hóladómkirkju.

Notalegt andrúmsloft var í kirkjunni og bjart yfir kirkjugestum þrátt fyrir að næðinginn utandyra. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju sungu, Hjalti Jónsson, tenór, söng einsöng og organisti var Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Vígsluvottar voru  Sr. Bolli Pétur Bollason, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Hildur Eir Bolladóttir, sr. Bjarni Karlsson og sr. Svavar Jónsson, sem jafnframt lýsti vígslu.  Sr. Gunnar Jóhannesson, sóknarprestur á Hólum, þjónaði fyrir altari.

 

 

 

Fleiri fréttir