Gæran tilkynnir fyrstu hljómsveitirnar

Í ár fer tónlistarhátíðin Gæran fram daganna 24. - 25. ágúst á Sauðárkróki. Er þetta í þriðja sinn sem hún er haldin og munu um 20 hljómsveitir koma fram að venju ásamt sólóistakvöldi sem fram fer 23. ágúst. Hátíðin fer fram í einu sútunarverksmiðju landsins, en hún sérhæfir sig meðal annars í framleiðslu á fiskileðri og er eina sútunarverksmiðjan í Evrópu sem framleiðir slíka vöru.

Nú er komið að því að tilkynna fyrstu hljómsveitirnar en þær eru :

Dimma, Funk That Shit, Skúli Mennski, Brother Grass, Gildran og Contalgen Funeral.

Miðasalan hefst í júlí en þeir sem vilja næla sér í fría miða, þá er facebook leikur í gangi á facebook síðu Gærunnar og eru dregnir miðar út reglulega þar - www.facebook.com/Gaeranmusic -

Hér má svo kíkja á stemninguna frá því á síðasta ári

http://www.youtube.com/watch?v=beRZYUUr0TE

 

Fleiri fréttir