Gagnrýna hugmyndir stjórnvalda um hrognkelsaveiðar

Byggðarráð Sveitarfélagins Skagafjarðar gagnrýnir harðlega hugmyndir stjórnvalda um tilhögun grásleppuveiða fyrir árið 2013. Á síðasta fundi byggðarráðs var lagt fram afrit af bréfi frá stjórn Smábátafélagsins Skalla til Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra er varðar reglugerð nr. 106. frá 7. febrúar 2013 um takmörkun veiða, ásamt bókun Bæjarráðs Fjallabyggðar 26. febrúar 2013.

„Nái þessar tillögur fram að ganga óbreyttar þá er verið að setja í uppnám afkomu grásleppuútgerða í Skagafirði,“ segir í fundargerð og fer byggðarráðið fram á það við atvinnu- og nýsköpunarráðherra að leggja til hliðar skerðingaráform vegna grásleppuveiða fyrir árið 2013.

Fleiri fréttir