Garðlönd fyrir íbúa í Varmahlíð
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur hug á að koma upp garðlöndum í Varmahlíð fyrir íbúa þar og óskar eftir umsóknum frá þeim sem hafa áhuga á að fá reit til afnota undin hverskyns matjurtarækt. Í tilkynningu frá Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa sveitarfélagsins kemur eftirfarandi fram:
“Íbúar í Varmahlíð, hér með er vakin athygli ykkar, sem kunna að hafa áhuga, að fá til afnota garðland við Varmahlíð. Finnist nægir listhafendur, er ætlunin að útbúa garðlönd fyrir þorpsbúa þar sem rækta mætti kartöflur og/eða aðrar matjurtir. Þeir sem hafa áhuga sendi tölvupóst á kari@skagafjordur.is og tilgreini hversu stóran reit þeir vilji. Frestur til að sækja um er til 3. júní.”
/SMH