Geggjaður glamúr og gargandi goth!

Ekki hefur það farið framhjá þeim sem fylgjast með Fröken Fabjúlöss að hún er svoítið hrifin af öllu sem á ættir að rekja til Goth tískunnar. Sjálf er hún ekki mikið í að meika sig kríthvíta með svartann eyeliner fyrir allann peninginn, en fata og fylgihlutatískan sem fylgir þessum ákveðna lífsstíl hefur löngum átt upp á pallborðið hjá dömunni!

Þegar við í tískuhorni Fabjúlössmans hnutum um FB síðu á netinu sem heitir Tragic Beautiful breikkaði heldur betur glottið á Frökeninni. Þegar hún svo uppgötvaði að samhliða feisbúkkinu væru þau með heimasíðu með ennþá stærra úrvali og ítarlegri myndum af varningnum fóru að myndast mölflugur í peningaveskinu!

Tragic Beautiful er með stórkostlega fallegt úrval af allskonar kjólum og sá Fröken Fabjúlöss fram á gjaldþrot á komandi mánuðum ef hún léti eftir sér að kaupa allt sem hugurinn girntist á þessari síðu! Kjólarnir eru margir mjög svipaðir (og í sumum tilfellum eins) og kjólarnir sem íslenska búðin Kjólar og Konfekt er að selja, en Tragic Beautiful toppa Kjóla og Konfekt með aukahlutaúrvalinu sem þau eru líka að bjóða upp á! Veskin eru óstjórnlega falleg og skartið er samansafn af einhverju sem gæti hafa fundist í skartgripaskríni vellauðugrar 17. aldar nornar- semsagt alveg gjörsamlega gordjöss!

Einnig er ákveðin gerð af flík sem hefur alla tíð heillað Fröken Fabjúlöss, og það eru korsilettur. Og þar kemur Tragic Beautiful heldur betur sterk inn með stórkostlega fallegar korsilettur í allskonar útfærslum og svona stórskemmtilega hræbillegar, að meðaltali 34 dollarar stykkið!

En þessi draumavefverslun er ekki eingöngu með fatnað heldur bjóða þau einnig upp á förðunarvörur og fékk Fröken Fabjúlöss fiðring í förðunarhjartað þegar hún rak augun í merki eins og Lime Crime, Concrete Minerals og síðast en ekki síst hennar heittelskaða Sugarpill!

Fröken Fabjúlöss líður eins og einhver hafi safnað saman öllu því sem hún hefur í laumi verið að dást að á netinu seinasta árið, smellt því saman í lager og ákveðið að opna vefverslun

Hér að neðan má sjá algjört brotabrot af því sem þessi dásemdarverslun hefur upp á að bjóða, og ef lesendur Fröken Fabjúlöss klikka hér endið þið inni á mynd með leiðbeiningum um smá feisbúkkleik sem þau eru með í gangi núna!

Njótið og verið fabjúlöss!!!

 

Fleiri fréttir