Geggjuð gúmmístígvél!

Eitt af því sem má treysta á með fölnandi laufblöðum og lækkandi hitastigi haustkomunnar er rigningin! Upp að sirka 10 ára aldri er hægt að láta sér nægja gömlu góðu Nokia stígvélin til að plampa í pollunum, en þegar glamúr og almennur pjattrófuháttur er annars vegar þá getur Fröken Fabjúlöss ekki með góðu móti sætt sig við Nokia stígvél eða gúmmítúttur.

En það vill nú svo skemmtilega til að Frk Fab er ekki sú eina sem gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að klæðast gúmmístígvélum þegar slagveður geysar! Eru hinir ýmsustu tískuhönnuðir farnir að taka við sér og útlitsbæta og breyta þessari annars ágætu uppfinningu þannig að hin almenna glamúrgella geti hugsað sér að klæðast samkvæmt veðri!

Hönnuðir eins og Jimmy Choo, Christian Dior og Louis Vuitton hafa allir gefið út sína hönnun af gúmmístígvélum, hver öðrum smartari. Við hérna í heimsveldi Fab erum einstaklega hrifnar af Louis Vuitton gúmmístígvélunum enda með eindæmum háhæluð og ótrúlega lekker!!! Kannski ekki alveg hönnuð með það í huga að hoppa í pollum en við getum nú alveg sætt okkur við að þurfa að sleppa því ef við kæmum höndum yfir eitt par!

Við sjáum myndir:

Fleiri fréttir