Gera við ljósleiðarann í nótt
Gagnaveita Skagafjarðar vill ítreka fyrri tilkynningu sína að vegna bilunar á stofnlögn í ljósleiðaraneti Gagnaveitu Skagafjarðar ehf. á Sauðárkróki mun verða rof á allri þjónustu í nótt föstudagsins frá kl. 1.00 til kl. 5.00. Við þetta þjónusturof fellur niður öll þjónusta Fjölnets og Vodafone sem er á ljósleiðaraneti Gagnaveitunnar.
Gagnaveita Skagafjarðar ehf. biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem viðskiptavinir hennar kunna að verða fyrir.