Gerðu sér ferð á Spákonufell
Hress hópur nemenda í útivistaráfanga FNV fóru föstudaginn 19.október sl. í ferð númer tvö í haustáfanganum og var ferðinni heitið á Spákonufell á Skagaströnd. Samkvæmt heimasíðu FNV var það 17 manna hópur sem lagði á fjallið og voru allir í sólskinsskapi, enda var þvílík blíða að annað var ekki hægt.
Spákonufell er um 640m hátt fjall sem stendur rétt við Skagaströnd og er stolt og prýði þeirra Skagstrendinga. Á heimasíðunni segir að farin var stikuð leið upp, sem reyndar var ekki mjög greinileg á köflum, en það kom ekki að sök lengst af. Allir voru hressir til göngu og miðuðu þeim vel.
Niður komust allir eftir skemmtilega ferð en næst verður stefnan sett á að fara yfir Merkigil en þess má geta að fyrsta ferð áfangans var Raftingferð niður vestari Jökulsá sem heppnaðist einnig mjög vel.
Ferðasöguna má lesa á heimasíðu FNV og myndir frá ferðinni má sjá hér.