Gert klárt fyrir félagsmót

Hestamannafélagið Léttfeti heldur firmakeppni og félagsmót sitt í vikulokin og voru vaskir félagsmenn að snurfusa keppnisvöllinn í óblíðunni í gærkvöldi. Opið skeiðmót í 100m skeiði verður haldið á laugardagskvöldið og er liður í SveitaSælu 2010.

Reyta þurfti illgresi og hávaxnar villijurtir sem búnar voru að róta sig í köntum hringvallarins og skyggja á fiman fótaburð gæðinganna sem fara eftir vellinum. Firmakeppni Léttfeta fer fram föstudagskvöldið 20. júlí og er skráning  í Tjarnarbæ milli kl. 18:00 – 19:00 en keppni hefst kl 19:30   Keppt verður í:  Barnaflokki  (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokki (14 – 17  ára á árinu), Ungmennaflokki (18 -21 ára á árinu), Kvennaflokki og Karlaflokki.

Félagsmótið verður haldið laugardaginn 21.ágúst  en þar eru keppnisgreinarnar: A- og B-flokkur. Barna, ungl og ungmenna-flokkar. Skráningar þurfa að berast til Guðmundar á netfang badboy@simnet.is fyrir miðvikudaginn 18.ágúst n.k.   Skráningargjald kr. 1.000,-  Gefa þarf upp nafn og kennit knapa og IS-númer hests.   ATH! Allir keppnishestar skulu skráðir í Worldfeng og í eigu félagsmanns í Léttfeta.

Opið skeiðmót í 100m skeiði verður svo haldið þann 21.ágúst á félagssvæði Léttfeta kl 20:30.  Skráning á staðnum og skráningargjald kr. 1.000,-

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir