Gestir Glaumbæjar aldrei fleiri

Gestir safnsvæðisins í Glaumbæ hafa aldrei verið fleiri en á þessu sumri samkvæmt heimasíðu Byggðarsafns Skagfirðinga en þann 10. september, sem var síðasti sumaropnunardagur safnsins, höfðu 31.339 gestir gegnið um gamla bæinn. Safnsýningagestir eru því orðnir yfir 33.300 á þessu sumri af því að á sýningar í Minjahúsinu komu 2032 gestir.

Framvegis verða sýningar safnsins opnar eftir samkomulagi. Töluvert er um hópapantanir fram í október og margir enn á ferðinni á eigin vegum.

 

Fleiri fréttir