„Getum ekki ímyndað okkur lífið án dætra okkar“
Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir frá Skagaströnd og Friðrik Kristinsson frá Sauðárkróki lögðu af stað út til Kólumbíu að sækja dætur sínar þann 16. desember 2011 og bjuggust þá við að vera úti í kringum 6 vikur. Þau eru ekki ennþá komin heim og er ekki útlit fyrir það að þau komi heim neitt á næstunni, segir facebook-síðu til sem stofnuð hefur verið til styrktar þeim hjónum.
„Hver hefði trúað því að við gætum virkilega lent í svona martröð. Við biðum róleg í röð í 5 ár, fórum eftir öllu því sem við áttum að gera sama hversu óréttlát og niðurlægjandi okkur þótti það vera, því við trúðum því að á endanum myndum við fá drauminn okkar uppfylltan. Við getum ekki ímyndað okkur lífið án dætra okkar en það sem okkur finnst ennþá hræðilegri tilhugsun er að stelpurnar okkar fái ekki að halda áfram að eiga stóra fjölskyldu sem elskar þær og að þær verði bara tvær aleinar í heiminum,“ segir Bjarnhildur í bloggfærslum sínum sem birt var á styrkarsíðunni.
Hjónin lögðu af stað í draumaferðina sína til Kólumbíu 16. desember 2011 og er sagt frá því þegar þau fengu dætur sínar í fangið 20. desember. „Stelpurnar þeirra eru alveg yndislegar og sést alveg langar leiðir að þeim er svo innilega ætlað að verja lífinu saman. Draumur hjónanna varð loksins að veruleika,“ segir á síðunni.
Eftir að fólk tekur við börnunum sínum í Kólumbíu fer ættleiðingarmálið fyrir dómstólana þarlendis og síðan þurfa börnin að fá útgefin vegabréf og loks vegabréfsáritun heim til Íslands. Ferlið á að taka um 4 - 6 vikur.
„Hjónin hafa verið í Kólumbíu frá því 17. desember og ferlið því búið að taka yfir 6 mánuði. Hjónin fengu mjög erfiðan dómara sem tók fyrir þeirra mál út í Kólumbíu. Sögusagnir eru um að hann sé í „stríði“ við ICBF ríkisreknu ættleiðingarstofnunina og reyni að gera það sem hann getur til að klekkja á henni. Hann virtist allavega gera allt sem hann gat til að tefja mál fjölskyldunnar og svo að lokum endaði málið á versta veg í dómsstólnum hjá honum,“ segir á styrktarsíðunni.
„Við höfum ömurlegar fréttir, dómarinn er búinn að gefa út dóminn og ógilti hann fyrri dóm ICBF að stelpurnar væru lausar til ættleiðingar. Við erum í algjöru sjokki hérna og vitum við ekki hver næstu skref verða,“ sagði Bjarnhildur. „Það er ekki komið í ljós hvort við fáum að hafa stelpurnar hjá okkur meðan málinu er áfrýjað eða hvort við þurfum bara að fara heim og bíða þar. Ef við fáum ekki að hafa þær hjá okkur þá þurfa þær að fara á barnaheimili eða til fósturfjölskyldu því það er engin hér sem gerir tilkall til þeirra,“ segir hún.
Umrædd styrktarsíða var stofnuð þar sem þetta er mjög dýrt ferli fyrir hjónin og hefur kostnaðurinn farið langt fram úr öllum hugsanlegum fjárhagsáætlunum. „Við vildum því setja upp þessa söfnunarsíðu til að reyna að aðstoða þau því nógu erfitt er þetta fyrir þau svo þau þurfi ekki líka að hafa endalausar fjárhagsáhyggjur,“ segir á síðunni.
Reikningur hefur verið stofnaður til styrktar þeim: 0160-15–380170, Kt: 161278-4599.
Hér má lesa ítarlega reynslusögu þeirra hjóna.