Gjaldskrárhækkun skóla í Skagafirði framundan

Hækkun fæðis- og dvalargjaldskrár í leik- grunn- og tónlistarskólum í Skagafirði, auk gjaldskrár skólarútu á Sauðárkróki, var til umræðu á síðasta fundi Byggðarráðs Skagafjarðar sem haldinn var 22. nóvember sl. Samkvæmt tillögu fræðslunefndar munu gjöldin hækka um 9% frá og með 1. janúar 2013. Byggðarráð samþykkti samhljóða að vísa gjaldskránni til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Á fundi Byggðarráðs skapaðist umræða um hækkun leikskólagjaldanna og lagði Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra fram eftirfarandi bókun:

Áhersla VG að hækka leikskólagjöld langt umfram verðlag kemur á óvart þar sem flokkurinn boðaði í stjórnarandstöðu gjaldfrjálsan leikskóla. Sömuleiðis boðaði samstarfsflokkur VG í meirihluta, í aðdraganda síðustu kosninga að tryggja ódýr leikskólapláss.“

Þeir Stefán Vagn Stefánsson og Bjarni Jónsson segja í bókun sinni að leikskólagjöld verða áfram með þeim allra lægstu á landinu þó þau séu hækkuð til að halda í við kostnaðarhækkanir.

Þá óskuðu þeir Jón Magnússon og Þorsteinn T. Broddason bókað:

„Brýnt er að meirihluti sveitarstjórnar snúi sér í ríkari mæli að lækkun útgjalda sveitarfélagsins og tryggi að þær aðgerðir skili árangri áður en lögð eru frekari álögur á íbúa sveitarfélagsins,“ segir í fundargerð.

Fleiri fréttir