Glæsileg dagskrá á Galakvöldi
Galakvöld verður haldið í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki nk. laugardag. Búið er að setja saman glæsilega dagskrá en mikil vinna hefur staðið yfir síðustu vikur vegna undirbúnings þessa kvölds, segir í fréttatilkynningu.
Tónlistin mun skipa stóran sess í dagskrá kvöldsins og tekur Multi Musica hópurinn á móti gestum, eins og þeim er einum lagið, og síðan munu þau Helga Rós Indriðadóttir og Gissur Páll Gissurarson flytja tónlistarperlur. Thomas Higgerson mun sjá um allan undirleik auk þess að leika ljúfa tóna fyrir matargesti.
Blaðamaðurinn og rithöfundurin Björn Jóhann Björnsson verður á léttu nótunum og mun segja Skagfirskar skemmtisögur og frá tilurð þeirra.
Húsið opnar kl. 19:30 og eru gestir vinsamlegast beðnir að koma eigi síðar í hús en kl. 20:00. Það er einn eftirsóttasti kokkur landsins, meistarakokkurinn Þráinn Freyr Vigfússon sem hefur veg og vanda af matseðli kvöldsins sem er stórglæsilegur.
Vakin er athygli á því að miðasölu er formlega lokið en ef einhver óskar þess að fá miða má hafa samband við Ómar í síma 898 1095.