Glæsileg kokkakeppni í Árskóla

Í gær fór fram kokkakeppni Árskóla á Sauðárkróki þar sem fimm lið tóku þátt, eitt lið úr hverjum matreiðsluhópi.  Mikill áhugi og gróska er í heimilisfræðinni og er orðin sterk hefð fyrir þessari árlegri keppni í matreiðslu. Að sögn Ástu Búadóttur kennara var maturinn sérstaklega vel heppnaður og allt sem nemendur elduðu mjög bragðgott. Dómarar voru lengi að störfum, smökkuðu oft á réttunum og greinilegt að valið var erfitt.

Eftir erfiða bið voru þó úrslitin loksins kunngjörð og varð lið Hugrúnar, Maríönnu og Sunnu Lífar  hlutskarpast í fyrsta sæti en þær elduðu Orvieto - ostafylltar –  kjúklingabringur. Í öðru sæti voru þeir Óli Björn og Ágúst Natan með Lambafillie – Mojito og í þriðja sæti  voru Eva, Inga Margrét og Hjördís með kjúklingabringur í piparostasósu.

Eins og áður sagði voru allir réttirnir ljúffengir og erfitt val fyrir dómarana sem voru að þessu sinni þeir  Jón Daníel matreiðslumeistari, Róbert bakarameistari og Árni á Hard Wok Café. Mikil eftirvænting ríkti hjá krökkunum eftir úrslitum enda mátti sjá á matseðlunum að mikill metnaður var lagður í matargerðina.

-Það kemur ánægjulega á óvart að sjá, hversu mikil gróska er í matreiðslukennslu í grunnskólunum, og ef þetta er matreiðslan hjá yngri kynslóðinni má búast við að við matgæðingar horfum fram á  bjarta framtíð sem við getum hlakkað til! Þessi keppni var í alla staði vel skipulögð og stórskemmtileg og það var gaman að sjá hvað krakkarnir lögðu sig vel fram og gæðin voru ekki af verri endanum, sagði Ásta.

Öllum þátttakendum er óskað til hamingju með frábæran  árangur og góðan mat og dómurunum fyrir að gefa sér tíma til að koma og dæma. Ásta vildi koma kæru þakklæti til KS, Hard Wok, Ólafshúss og Orkustöðvarinnar Bláfells fyrir þeirra hlut í keppninni.

Fleiri fréttir