Gleði á vortónleiknum strengjadeildar Tónlistarskólans
Strengjadeild Tónlistarskóla Skagafjarðar hélt sína árlegu vortónleika í Miðgarði þann 1. maí síðastliðinn og að sögn Kristínar Höllu Bergsdóttur tónlistarkennara tókust þeir vel. Þar léku 32 nemendur á fiðlur, selló, víólu og kontrabassa. Spilað var í stórum og litlum hópum og að lokum lék öll strengjasveitin saman Óður til Gleðinnar.
„Það má segja með sanni að það eru ekki margar strengjasveitir sem státa af því að geta haft öll þessi hljóðfæri saman komin því oft vantar nemendur á víólu og kontrabassa,“ segir Kristín Halla.
Nemendur voru frá 4 ára aldri og uppúr og skemmtu sér allir konunglega. Samkvæmt Kristínu hefur strengjadeildin blómstrað í ár og mikil spilagleði ríkt í hópnum. Margir nemendur fóru í próf eða útskrifuðust úr bókum og miklar framfarir urðu hjá nemendum.
Nú æfa tveir nemendur, þær Guðfinna Olga Sveinsdóttir og Matthildur Guðnadóttir, með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fyrir Eurovísjón tónleika sem verða þann 5. maí í Hofi.
„Erum við stolt af því að eiga nemendur í hljómsveitinni og ef spilagleðin verður jafn mikil og hún var í vetur megum við alveg eiga von á því að eiga fleiri nemendur þar í framtíðinni,“ segir Kristín Halla en áður hafa einnig leikið með hljómsveitinni þær Sigríður Stefanía Einarsdóttir og Ragnheiður Silja Have Jónsdóttir.
Á komandi hausti er svo ráðgert að leggja land undir fót því Landsmót strengjanemenda verður í Grafarvogi í október.
„Það verður því nóg að gera á komandi ári og hlakkar kennarann mikið til að vinna áfram með þessu flottu krökkum og unglingum,“ segir hún í lokin.