Glimrandi aðsókn – 2 aukasýningar
Aðsókn á Tifar tímans hjól hefur verið mjög góð og hefur því verið ákveðið að bæta við tveimur sýningum, sunnudaginn 12. maí og Hvítasunnudag 19. maí og hefjast báðar sýningarnar kl. 20.30. Uppselt hefur verið á flestar sýningar og einnig er uppselt á næstu tvær sýningar, í kvöld og fimmtudagskvöld.
Um miðapantanir sér Erna Nielsen í síma 849 9434 virka daga frá 16 – 18 og
einnig klukkustund fyrir sýningu í síma og í Bifröst.
Eftirfarandi er sýningarplanið:
7. sýning þriðjudaginn 7. maí kl 20:30 (Uppselt)
8. sýning fimmtudaginn 9. maí kl 17:00 (Uppselt)
9. sýning föstudaginn 10. maí kl 23:00 (Miðnætursýning)
10. sýning laugardaginn 11. maí kl 15:00
Aukasýning sunnudaginn 12. maí kl. 20.30
Aukasýning sunnudaginn 19. maí kl. 20.30
/Fréttatilkynning