Glutruðu niður forystunni
Þriðjudeildarliðið Drangey á Sauðárkróki lék sinn fyrsta deildarleik í knattspyrnu í gær er KFG úr Garðabæ kom í heimsókn. Leikið var við ágætar aðstæður, fínt veður og stemningin góð.
Það kom fljótlega í ljós að drengirnir í Drangey eru vel samhæfðir og líklegir til alls því þeir báru enga virðingu fyrir liði Garðabæjar sem spáð er þriðja sæti í riðlinum af sérfræðingum Fótbolti.net en Drangey er spáð 6. sætinu.
Hilmar Þór Kárason kom Drangey yfir strax á 6. mínútu leiksins og voru Drangeyingar líklegri til að setja annað en gestirnir að jafna. Ekki dró þó til tíðinda fyrr en komið var að lokum fyrri hálfleiks er Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson þrumaði boltanum af öryggi í net Garðbæinganna og allt útlit fyrir góða 2 – 0 stöðu heimamanna í hálfleik. Ekki leið þó mínúta frá því gestirnir tóku miðju að þeir ná að koma boltanum í net heimamanna og dómarinn flautaði leikinn af.
Seinni hálfleikur var á svipuðum nótum heimamenn virtust sterkari aðilinn í leiknum og svo fór að Hilmar Þór náði að skora sitt annað mark í leiknum og staðan orðin 3 – 1 fyrir heimamenn sem þóttu vera með unnin leik í höndunum. En eins og gömul speki segir þá er leikurinn ekki búinn fyrr en dómarinn flautar hann af. Og dómarinn notaði flautuna í fleiri verkefni. Á 78. mínútu fékk Bjarni Smári áminningu og svo aðra til tíu mínútum seinna fyrir kjaftbrúk og það þýddi rautt spjald og hann því rekinn af velli.
Í millitíðinni dæmdi dómarinn umdeilt brot á Bjarka Árna innan vítateigs og gestirnir fá víti sem þeir nýta vel og minnka muninn í eitt mark. Nú vonuðu áhorfendur sem flestallir voru á bandi heimaliðsins að leiktíminn rynni út án þess að fleiri áföll dyndu á, en svo gott var það ekki. Á síðustu mínútu leiksins ná gestirnir að jafna leikinn og stela dýrmætu stigi.
Það má segja að Drangeyjarjarlarnir hafi sýnt það í þessum leik að þeir séu til alls líklegir í sumar þrátt fyrir að hafa misst forskotið niður í jafntefli í bláenda leiksins og gaman verður að fylgjast með þeim í sumar.
Byrjunarlið Drangeyjar:
- 1 Óli Grétar Óskarsson (M)
- 2 Jóhann Helgason (F)
- 4 Hallgrímur Ingi Jónsson
- 5 Bjarki Már Árnason
- 6 Bjarni Smári Gíslason
- 7 Óskar Smári Haraldsson
- 10 Kristinn Justiniano Snjólfsson
- 13 Hilmar Þór Kárason
- 14 Stefán Hafsteinsson
- 17 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson
- 20 Gunnar Stefán Pétursson
Varamenn:
11 Konráð Freyr Sigurðsson
15 Hólmar Daði Skúlason
18 Ívar Sigurðsson
19 Ingvi Rafn Ingvarsson
22 Sveinbjörn Guðlaugsson