Góð afkoma hjá KS

Kaupfélag Skagfirðinga heldur aðalfund sinn á morgun sumardaginn fyrsta í Selinu á Sauðárkróki. Samkvæmt ársreikningi félagsins nam hagnaður KS samstæðunnar á síðasta ári 2.451 milljón króna sem er svipuð afkoma og 2010 en þá var hagnaður samstæðunnar 2.418 milljónir kr.

Samstæðan velti á síðasta ári rúmum 26,2 milljörðum en árið 2010 var veltan rúmir 25,7 milljarðar króna. Heildareignir samstæðunnar voru rúmir 29,3 milljarðar við lok síðasta árs og höfðu hækkað um einn milljarð frá árinu á undan. Eigið fé samstæðunnar var 17, 8 milljarðar á móti 15,5 milljörðum árið 2010.

Starfsmenn KS samstæðunnar voru um 700 talsins á síðasta ári og námu launagreiðslur alls 5,5 milljörðum króna. Í samstæðureikningi KS eru auk samvinnufélagsins m.a. FISK Seafood, Fóðurblandan, Sláturhús KVH, Vörumiðlun, Trésmiðjan Borg, Tengill, Mjólka og Vogabær. Fram kemur í ársskýrslu félagsins að Kaupfélag Skagfirðinga sé fyrst og fremst matvælaframleiðslufyrirtæki sem leggur metnað sinn í vandaða og hagkvæma framleiðslu fyrir innlendan og erlendan markað.!

Fleiri fréttir